Mannréttindi eru grundvallarréttindi sem allir einstaklingar eiga að njóta án mismununar. Það þýðir að allir eigi tilkall til jafnra mannréttinda óháð kyni, aldri, fötlun, kynhneigð, heilsufari, trúar- og stjórnmálaskoðunum, þjóðerni eða uppruna og stöðu að öðru leyti.

Mannréttindi eru varin í mannréttindakafla íslensku stjórnarskrárinnar, í alþjóðlegum mannréttindasamningum og yfirlýsingum sem Ísland er aðili að og eins eru þau tryggð í mörgum íslenskum lögum. Til þess að mannréttindi séu virt í verki skiptir máli að stjórnvöld og almennir borgarar þekki réttindi sín og skyldur. Í því samhengi skiptir mannréttindaþekking og fræðsla höfuðmáli.

Á þessari vefsíðu er að finna mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar, yfirlit yfir helstu mannréttindasáttmála, samninga og löggjöf sem tengist mannréttindum, auk upplýsinga um hvert beri að leita til að sækja rétt sinn.

Allar ábendingar um efni síðunnar berist á mannrettindi@reykjavik.is og eru þær vel þegnar.

 

 Ljósmyndasamkeppni

 

Vinningsmynd ljósmyndasamkeppni mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur


            Það þurfa ekki allir að vera eins - Verum öðruvísi
            Ljósmynd: Friðrik Halldór Kristjánsson